Alltaf að breyta

Skrifað desember 17, 2006 af jonomar
Flokkar: Allt

WordPress virkar ekki fyrir mig þannig að ég hef ákveðið að flytja mig um sett á: www.jonomar.blog.is, ég harma ef þessi breyting  hefur valdið þér óþægendum.

Hvalur, hval, hvali, hvals…

Skrifað október 23, 2006 af jonomar
Flokkar: Allt, Daglegt líf

Heimurinn er undarlegur og forgangsröðun heimsins er einnig undarleg. Þann 17. október 2006 ákváðu Íslendingar að hefja hvalveiðar í atvinnuskyni á grundvelli stefnu stjórnvalda um sjálfbæra nýtingu lifandi auðlinda hafsins. Heimilt er að veiða 9 langreyða og 30 hrefnur en hafrannsóknarstofnun telur að veiðar á allt að 400 hrefnum og 200 langreyðum samrýmast markmiðum um sjálfbæra nýtingu.  Samkvæmt mati Alþjóða hvalveiðiráðsins eru 25800 langreyðar og 43000 hrefnur við landgrunn Íslands. Þannig hefur ríkisstjórnin heimilað veiðar á innan við 0,02% langreyða og 0,04 % hrefna við landgrunn Íslands. Íslendingar eru því orðnir hættulegri en Norður Kórea og Al queda til samans Read the rest of this post »

Að guð skuli sjá nokkurn glaðan dag…

Skrifað október 5, 2006 af jonomar
Flokkar: Kirkjan og guðfræði

Að guði skuli sjá nokkurn glaðan dag,

ég get ekki skilið það sinnislag.

Að horfa á þá neyð, já, og heyra þau óp

frá hnetti, sem hann til gleði skóp.

Hann sorgleikaskáld víst með afbrigðum er,

ef unað hann hefur af því, sem hann sér.

Read the rest of this post »

Til Jakarta

Skrifað september 13, 2006 af jonomar
Flokkar: Uncategorized

Í gær barst mér bréf frá Englandi það var dagsett 20. ágúst og hefur það því verið frekar lengi á leiðinni yfir hafið. Enda þarf oftast ekki nema þrjá sólarhringa. Þegar ég grandskoðaði umslagið tók ég eftir því að á umslagið var stimplað: “MISSENT TO JAKARTA, INDONESIA”. Þar kom skýringin á því hversu lengi bréfið var á leiðinni einhver hafði ruglast á REYKJAVIK, ICELAND og JAKARTA, INDONESIA.

Í sundur….

Skrifað september 8, 2006 af jonomar
Flokkar: Daglegt líf

Pressan í bloggheiminum er mikil. Fyrir nokkrum árum var ég duglegur bloggari svo duglegur að það kom fyrir að ég bloggaði tvisvar og jafnvel þrisvar sama dag. Svo kom hnignunartímabil í blogg ævintýri “jongunna” því lauk 31. október 2005 þegar ég ákvað að hætta að blogga. Ástæða þess var sú að ég var orðinn langþreyttur að því áreiti sem fylgir því að hafa eitt sinn verið góður bloggari “hva’ á ekki að blogga tvisvar í dag?” og þegar ég bloggaði ekki svo vikum skipti þá var sagt “rosalega ertu lélegur bloggari”, ég sem áður hafði bloggað margfalt meira en þetta fólk! Þegar mánuður leið á milli blogga þá kom þyngsta höggið “þú hefur verið fjarlægður af tenglalistnaum hjá mér” meira segja mínir bestu vinir gáfust upp á mér. Algjör höfnun í bloggheimum, hjarta mitt brotið og andi minn kraminn. Read the rest of this post »

Sól, sól skín á mig

Skrifað ágúst 15, 2006 af jonomar
Flokkar: Daglegt líf

Íþróttahúsið � Vatnaskógi eftir breytingar.Klukkan 15.40 lauk ég mínu fyrsta og vonandi síðasta sumarprófi það er nákvæmlega ekkert sniðugt við það að taka sumarpróf! Hvernig á maður að komast í prófgírinn í ágúst eftir næstum því 3 mánuða frí frá skólanum, en þetta er þó búið. Sólin skín og ég er glaður að vanda og hlakka til að slaka á í kvöld. Á morgun fer ég aftur heim í heiðardalinn eða Svínadalinn þangað sem að kát fermingarbörn eru komin til að leika og læra. Annars er ýmislegt…. Read the rest of this post »

Nýtt heimili

Skrifað ágúst 14, 2006 af jonomar
Flokkar: Daglegt líf

Nýtt heimili

Stúdentagarðar FS: Úthlutun íbúðar! Á skýjuðum ágústdegi blöstu þessi orð við mér er ég opnaði pósthólfið mitt á uglu HÍ. Í um það bil 1 ár hef ég verið á biðlista eftir stúdentaíbúð, en eins og margir vita hefur fjölskylda mín staðið í deilum í tvö ár við sveitfélagið Mosfellsbær um byggingarheimildir. Deilan er þess eðlis að aðeins menn með hrl. á eftir nafni sínu geta útskýrt hana svo ég læt það vera. Ekki sér fyrir endann á deilunni og á meðan má ekki klára húsið þannig að ég og systir mín höfum lifað nokkurs konar flökkulífi en þó ávallt samastað. Ég hef til dæmis verðið svo heppinn að njóta gestrisni Svensongengisins í Jakaseli 29. Það kemur sér sem sagt mjög vel að fá þessa íbúð hún er líka nokkuð glæsileg. Íbúðin mín er á fjórðu hæð með útsýni yfir faxaflóa, en töluvert ódýrari en íbúðirnar í nágranna – fjölbýlishúsinu þar sem meðal íbúð kostar milli 50 – 60 milljónir. Þannig hver veit nema að haldin verði kaffi/teboð að hætti Lutheran Dudes, Leaders in Wasserwald, Serafa, KSF-inga, guðfræðinema. eða hverjum öðrum félagskap sem ég tel mig tilheyra.

Bloggað

Skrifað ágúst 14, 2006 af jonomar
Flokkar: Daglegt líf

Kennslubókin � trúarl�fsálarfræðiÞá er það fyrsta alvöru færslan, ég er ekki enn orðinn alveg sáttur við útlit síðunnar og hún mun eflaust taka nokkrum breytingum. Ég á í það minnsta eftir að íslenska hana og gera mögulega örfáar breytingar á leiðaranum(header).

Undanfarið hef ég verið í bænum að lesa fyrir trúarlífssálarfræðiprófið sem ég varð að fresta síðustu jól þar sem að það var árekstur í próftöflu minni. En þetta hefur verið róleg törn ég hef í það minnsta ekkert verið að útkeyra mig í próflestri. Prófið er á morgun og ég á ekki von á öðru en að það gangi ágætlega enda vel gefinn drengur þar á ferð!

Loksins, loksins…

Skrifað ágúst 9, 2006 af jonomar
Flokkar: Allt

Þá er komið að því að ég Jón Ómar fari að blogga aftur eftir langt og dapurlegt hlé. Síðastliðin tvö ár hafa verið hnignunartímabil á bloggferli mínum og er komin tími til þess að hefjast handa við uppbyggingu bloggferilsins á ný. Ég bið lesendur að fyrirgefa þó að lítið verði bloggað í upphafi þar sem að nú er unnið að uppsetningu vefsins.


Follow

Get every new post delivered to your Inbox.