Archive for ágúst, 2006

Sól, sól skín á mig

ágúst 15, 2006

Klukkan 15.40 lauk ég mínu fyrsta og vonandi síðasta sumarprófi það er nákvæmlega ekkert sniðugt við það að taka sumarpróf! Hvernig á maður að komast í prófgírinn í ágúst eftir næstum því 3 mánuða frí frá skólanum, en þetta er þó búið. Sólin skín og ég er glaður að vanda og hlakka til að slaka [...]

Nýtt heimili

ágúst 14, 2006

Stúdentagarðar FS: Úthlutun íbúðar! Á skýjuðum ágústdegi blöstu þessi orð við mér er ég opnaði pósthólfið mitt á uglu HÍ. Í um það bil 1 ár hef ég verið á biðlista eftir stúdentaíbúð, en eins og margir vita hefur fjölskylda mín staðið í deilum í tvö ár við sveitfélagið Mosfellsbær um byggingarheimildir. Deilan er þess [...]

Bloggað

ágúst 14, 2006

Þá er það fyrsta alvöru færslan, ég er ekki enn orðinn alveg sáttur við útlit síðunnar og hún mun eflaust taka nokkrum breytingum. Ég á í það minnsta eftir að íslenska hana og gera mögulega örfáar breytingar á leiðaranum(header).
Undanfarið hef ég verið í bænum að lesa fyrir trúarlífssálarfræðiprófið sem ég varð að fresta síðustu jól [...]

Loksins, loksins…

ágúst 9, 2006

Þá er komið að því að ég Jón Ómar fari að blogga aftur eftir langt og dapurlegt hlé. Síðastliðin tvö ár hafa verið hnignunartímabil á bloggferli mínum og er komin tími til þess að hefjast handa við uppbyggingu bloggferilsins á ný. Ég bið lesendur að fyrirgefa þó að lítið verði bloggað í upphafi þar sem [...]