Sól, sól skín á mig
Klukkan 15.40 lauk ég mínu fyrsta og vonandi síðasta sumarprófi það er nákvæmlega ekkert sniðugt við það að taka sumarpróf! Hvernig á maður að komast í prófgírinn í ágúst eftir næstum því 3 mánuða frí frá skólanum, en þetta er þó búið. Sólin skín og ég er glaður að vanda og hlakka til að slaka á í kvöld. Á morgun fer ég aftur heim í heiðardalinn eða Svínadalinn þangað sem að kát fermingarbörn eru komin til að leika og læra. Annars er ýmislegt…. að gerast í dag eiga heiðurshjónin Þorgeir og Hlín að koma til landsins sem og Þráinn Haraldsson vinsælasti íslendingurinn og sá eini í Omo Rate 1. júli 2006 – 4. júlí 2006. Það verður gaman að fá kappann heim eftir 3. mánaða fjarveru og gaman verður að fá að sjá hvað hann keypti fyrir mig.
ágúst 19, 2006 at 12:13 pm
Jú og ég er líka komin til landsins!
En annars flott síða!
ágúst 19, 2006 at 4:35 pm
Hehe, takk fyrir það og velkomin heim
!
ágúst 21, 2006 at 3:23 pm
Magnað blogg
Gaman að þú skulir vera farinn að blogga aftur
Til hamingju með nýja heimilið
ágúst 25, 2006 at 10:40 am
Jeij þú byrjaður að blogga en ég kom ekki heim fyrr en 17. ágúst! En takk fyrir að minnast á okkur heiðurshjónin… hlakka til að sjá þig
september 7, 2006 at 10:48 pm
Fín síða! Bara svona að stimpla mig inn þó það væri ekki til annars en að auglýsa heimasíðu Seljakirkju seljakirkja.is he he!
september 8, 2006 at 12:37 pm
Þú ert nú eiginlega strax orðinn lélegur bloggari… þetta gengur ekki