Hvalur, hval, hvali, hvals…

Heimurinn er undarlegur og forgangsröðun heimsins er einnig undarleg. Þann 17. október 2006 ákváðu Íslendingar að hefja hvalveiðar í atvinnuskyni á grundvelli stefnu stjórnvalda um sjálfbæra nýtingu lifandi auðlinda hafsins. Heimilt er að veiða 9 langreyða og 30 hrefnur en hafrannsóknarstofnun telur að veiðar á allt að 400 hrefnum og 200 langreyðum samrýmast markmiðum um sjálfbæra nýtingu.  Samkvæmt mati Alþjóða hvalveiðiráðsins eru 25800 langreyðar og 43000 hrefnur við landgrunn Íslands. Þannig hefur ríkisstjórnin heimilað veiðar á innan við 0,02% langreyða og 0,04 % hrefna við landgrunn Íslands. Íslendingar eru því orðnir hættulegri en Norður Kórea og Al queda til samans 
Umhverfissamtök og þjóðir heims mótmæla. Sjávarútvegsráðherra BNA fordæmir hvalveiðum Íslendinga, sjávarútvegsráðherra Bretlands hótar að slíta stjórnmálasambandi við Íslendinga, Ástralar hóta öðru eins og allir fjölmiðlar heims eru uppfullir af lygasögum og einhliða málflutningi misheppnaðra stjórnmálamanna. Það sorglega við þetta allt er að misvitrir stjórnmálamenn nota hvalveiðar íslendinga til þess að breiða yfir önnur alvarlegri vandamál á alþjóðavísu. Í Ástralíu dvelja 15000 ólöglegir innflytjendur  í fangabúðum án dóms og laga og hafa margir dvalið þar í næstum 3 ár. Bandaríkjamenn hafa samþykkt heimild til þess að pynta grunaða hryðjuverkamenn og Bretar dæla kjarnorkuúrgangi í hafið eins og þeim sé borgað fyrir það (þeir fá borgað fyrir það). Daglega deyr fólk í þúsundavís því það á ekki hnífs og skeiðar, þjóðarmorð er raunveruleiki í Súdan, nýnasistum fjölgar á ný og svona má lengi telja. Með samstilltu átaki stórþjóða veraldar væri hægt að koma í veg fyrir þjóðamorðin í Súdan og hungursneyð 3ja heimsins, en hvers vegna er ekkert gert? Þjóðarleiðtogum er nákvæmlega sama því það þarf fyrst of fremst að vernda hvalinn!  

Explore posts in the same categories: Allt, Daglegt líf

Comment: