Archive for the 'Daglegt líf' Category

Hvalur, hval, hvali, hvals…

október 23, 2006

Heimurinn er undarlegur og forgangsröðun heimsins er einnig undarleg. Þann 17. október 2006 ákváðu Íslendingar að hefja hvalveiðar í atvinnuskyni á grundvelli stefnu stjórnvalda um sjálfbæra nýtingu lifandi auðlinda hafsins. Heimilt er að veiða 9 langreyða og 30 hrefnur en hafrannsóknarstofnun telur að veiðar á allt að 400 hrefnum og 200 langreyðum samrýmast markmiðum um [...]

Í sundur….

september 8, 2006

Pressan í bloggheiminum er mikil. Fyrir nokkrum árum var ég duglegur bloggari svo duglegur að það kom fyrir að ég bloggaði tvisvar og jafnvel þrisvar sama dag. Svo kom hnignunartímabil í blogg ævintýri “jongunna” því lauk 31. október 2005 þegar ég ákvað að hætta að blogga. Ástæða þess var sú að ég var orðinn langþreyttur [...]

Sól, sól skín á mig

ágúst 15, 2006

Klukkan 15.40 lauk ég mínu fyrsta og vonandi síðasta sumarprófi það er nákvæmlega ekkert sniðugt við það að taka sumarpróf! Hvernig á maður að komast í prófgírinn í ágúst eftir næstum því 3 mánuða frí frá skólanum, en þetta er þó búið. Sólin skín og ég er glaður að vanda og hlakka til að slaka [...]

Nýtt heimili

ágúst 14, 2006

Stúdentagarðar FS: Úthlutun íbúðar! Á skýjuðum ágústdegi blöstu þessi orð við mér er ég opnaði pósthólfið mitt á uglu HÍ. Í um það bil 1 ár hef ég verið á biðlista eftir stúdentaíbúð, en eins og margir vita hefur fjölskylda mín staðið í deilum í tvö ár við sveitfélagið Mosfellsbær um byggingarheimildir. Deilan er þess [...]

Bloggað

ágúst 14, 2006

Þá er það fyrsta alvöru færslan, ég er ekki enn orðinn alveg sáttur við útlit síðunnar og hún mun eflaust taka nokkrum breytingum. Ég á í það minnsta eftir að íslenska hana og gera mögulega örfáar breytingar á leiðaranum(header).
Undanfarið hef ég verið í bænum að lesa fyrir trúarlífssálarfræðiprófið sem ég varð að fresta síðustu jól [...]